|
23. mars

Stubbaknús! Þorbergur Þór,
Anna Lóa, Sunneva Líf og Baldvin.

Mússi múss.
10. mars

Fyrsti pakkinn!


Sunneva Líf skreytir kökuna, nánast með vísindalegri
nákvæmni. :)

5. marsÞá er Þorgeir Atli orðinn eins árs og þriggja
daga gamall! Alli og Fríða áttu einnig nýlega afmæli og
urðu þau þrítug, eða 29b eins og það er víst kallað.
:)
Þorgeir Atli er ekki enn farinn að
labba sjálfur en þetta hlýtur að koma fljótlega. Af
öðru má nefna að tennurnar eru að vera 6 talsins og glittir í
fleiri. Í síðustu viku byrjaði hann svo hjá dagmömmu og
gengur það bara vel. Svo er drengur aðeins farinn að babla og
stundum fæst hann til að segja mama, babba, ba ba (bæ bæ), enda með afbrigðum vel
gefinn drengur.
Sunneva Líf hefur haldið ótrauð
áfram í fimleikum og líkar það mjög vel. Einnig er
mikið að gera í leikskólanum, alls konar skemmtilegar ferðir,
leikrit, tónleikar, sungið í Ráðhúsinu o.fl. Mesti
spenningurinn þessa dagana er þó hvort ekki fari nú einhver
tönn að losna, ótrúlegt hvað þær sitja fast blessaðar.

|